24.4.2009
Styrkur
RBF fékk í gær, sumardaginn fyrsta, afhendan styrk frá Barnavinafélaginu Sumargjöf við hátíðlega athöfn í Salnum, Kópavogi. Styrkurinn er fyrir verkefnið Börn af erlendum uppruna og hefur RBF hafið fyrsta hluta þessa rannsóknarverkefnis en sú rannsókn snýr að flóttabörnum.
Nánar
20.4.2009
Morgunverðarfundur
Morgunverðarfundurinn ,,Náum áttum" verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl kl. 8:15-10:00 á Grand Hótel. Yfirskrift fundarins er ,,Sjálfboðaliðastarf og gildi þess fyrir forvarnarstarf".
Fyrirlesarar eru Sigþrúður Erla Arnardóttir, Fjóla Einarsdóttir og Steinunn Hrafnsdóttir.
Skráning fer fram á
www.lydheilsustod.is/skraning til kl. 17 þriðjudaginn 21. apríl.
16.4.2009
Norræn barnaverndarráðstefna
Dagana 9.-11. september verður haldin norræn barnaverndarráðstefna í Bergen, Noregi. Þema ráðstefnunnar er ,,Omsorg på barnets premisser – Barns rettigheter og utviklingsmuligheter i nye kontekster”, eða ,,Umsjá á forsendum barnsins – Réttindi barns og þroskaskilyrði í nýjum aðstæðum”.
Nánar
14.4.2009
Atvinnuleysi og fjárhagserfiðleikar
Hugrun Jóhannesdóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar höfuðborgarsvæðisins heldur erindi á málstofu RBF og félagsráðgjafardeildar um atvinnuleysi og fjárhagserfiðleika þriðjudaginn 14. apríl kl. 12-13 í Odda stofu 201.
Vinsamlegast athugið að breyting var frá áður auglýstum tíma.
14.4.2009
Þekking og færni í barnaverndarstarfi
Árlegt málþing Ís-Forsa verður haldið föstudaginn 17. apríl kl. 13-16 í stofu 103 á Háskólatorgi.
Fyrirlesarar verða Anne Halvorsen framkvæmdastjóri Agderforskning AS í Noregi, Anni G. Haugen lektor í félagsráðgjafardeild og Gruðrún Kristinsdóttir prófessor á menntavísindasviði.
Málþingið er opið öllum og fer skráning fram á
rbf@hi.is, aðgangseyrir er 2.500 kr. en nemar greiða 1000 kr.
Sjá meðfylgjandi dagskrá
hér.
3.4.2009
Rannsókn á ofbeldi gegn konum
Fyrstu niðurstöður viðamikillar rannsóknar á ofbeldi karla gegn konum voru kynntar í gær. Rannsóknin er unnin af RBF að beiðni félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
Fréttatilkynningu félags- og tryggingamálaráðuneytisins má sjá
hér
Nánar
31.3.2009
Málstofa 7. apríl - Kenning um öldrunarinnsæi
Næsta málstofa RBF og félagsráðgjafardeildar verður 7. apríl kl. 14:15-16:15 í Lögbergi stofu 101. Þá mun Dr. Lars Tornstam, prófessor í öldrunarfélagsfræði við háskólann í Uppsölum, fjalla um kenninguna um öldrunarinnsæi.
Málstofan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Nánar
26.3.2009
Fjölfagleg rannsóknarvinna á sjúkrahúsi
Föstudaginn 27. mars kl. 10:30 verður haldinn fyrirlesturinn
Fjölfagleg rannsóknarvinna á háskólasjúkrahúsi – Gæluverkefni eða efling á gæðum í þjónustu við sjúklinga? í Hringsal Landspítala Hringbraut.
Fyrirlesari er Sævar Berg Guðbergsson , félagsráðgjafi, Cand.mag, MPH, Cand.san, PhD sem starfar við Radiumhospitalet í Osló.
Nánar
23.3.2009
Málstofa fimmtudaginn 26. mars
Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernda og félagsráðgjafardeild HÍ standa að málstofunni Endurhæfing eftir krabbamein: Aðstæður foreldra og barna fimmtudaginn 26. mars kl. 12:30-13:30 í Öskju, N-132.
Fjallað verður um endurhæfingu og hæfingu eftir krabbamein, afleiðingar á lífskjör sjúklinga og aðstandenda og möguleika barna.
Fyrirlesari er Dr. Sævar Berg Guðbergsson við Clinical Cancer Research, the Norwegian Radium Hospital University of Oslo.
Málstofan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
15.3.2009
Málstofa RBF og félagsráðgjafardeildar
Þriðjudaginn
17. mars kl. 12-13, í Odda stofu 201, stendur RBF og félagsráðgjafardeild fyrir málstofunni
Frá ,,barninu í mér" að ,,mínu barni" . Fjallað verður um möguleika foreldra, sem eiga við sálfélagslega erfiðleika að etja, til að vera góðir foreldrar þrátt fyrir erfiðleika sína.
Fyrirlesari er Hrefna Ólafsdóttir, yfirfélagsráðgjafi á BUGL.
Nánar
3.3.2009
Rannsókn
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í febrúar nýja rannsókn um menntun og umönnun ungra barna í Evrópu.
Skýrsluna má nálgast
hér
20.2.2009
Málstofa 24. febrúar kl. 12-13 í Odda 201
Næsta málstofa RBF og félagsráðgjafardeildar HÍ í málstofuröðinni Erfiðeikar foreldra-aðstæður barna verður 24. febrúar. Þá heldur Katja Forssén, prófessor í félagsráðgjöf við háskólann í Turku, fyrirlesturinn Velferð barna í Finnlandi.
Nánar
20.2.2009
Nýsköpunarverðlaun 2009
Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir, nemandi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, var tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands sem voru veitt í vikunni. Verkefni Rannveigar gekk út á það að öðlast skilning og þekkingu á aðstæðum foreldra, sem ekki fara með sameiginlega forsjá, til fæðingarorlofstöku. Guðný Björk Eydal, dósent við félagsráðgjafadeild, var umsjónarmaður hennar að verkefninu.
12.2.2009
Handleiðsluhópur 2009
Umsóknarfrestur fyrir handleiðsluhóp 2009 hefur verið framlengdur til 17. febrúar n.k.
Smelltu hér til að sækja um Nánari upplýsingar um handleiðsluhópinn má nálgast
hér
10.2.2009
Búseta heima - þarfir og þjónusta við eldri borgara
Fagdeild félagsráðgjafa í öldrunarþjónustu, í samstarfi við RBF og Þjóðmálastofnun, stendur fyrir málþinginu
Búseta heima-þarfir og þjónusta við eldri borgara föstudaginn 20. febrúar. Málþingið verður haldið á Háskólatorgi, stofu HT-103, klukkan 13-16.
Skráning fer fram á
rbf@hi.is fyrir 18. febrúar.
Aðgangur er kr. 1000 en fyrir nema kr. 500. Kaffi og meðlæti innifalið.
Dagskrá málþingsins má nálgast
hér
27.1.2009
Ráðstefna í Belgíu um fátækt barna
Þann 12. febrúar næstkomandi stendur Eurochild fyrir ráðstefnu í Brussel sem ber heitið
Eradicating child poverty - The role of the European Union. Skráningarform og nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna
hér á heimasíðu Eurochild.
22.1.2009
Félagsráðgjöf og fagleg tengsl - Handleiðsluhópur
RBF býður upp á handleiðsluhóp í eitt ár fyrir félagsráðgjafa, sem vilja auka færni sína og þróa sig á sviði klíniskrar félagsráðgjafar. Hámarksfjöldi í hópnum er 7 manns, sem hittist einu sinni í mánuði 4 tíma í senn, samtals 32 handleiðslutímar.
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar næstkomandi.
Sjá nánar um handleiðsluhópinn hér
16.1.2009
Málstofa RBF og félagsráðgjafardeildar þriðjudaginn 20. janúar
Málstofan ber heitið:
Bataferli fjölskyldu alkóhólista.
Í fyrirlestrinum verður meðal annars fjallað um það að neysla áfengis- og annarra vímuefna hafi áhrif á fjölskylduna og sé talið að eitt af hverjum fjórum börnum búi á einhverjum tíma í uppvexti sínum við alkóhólisma/vímuefnasýki annarra í fjölskyldunni. Slíkar aðstæður geti valdið sálfélagslegum vanda. Fjölskyldan sé mikilvæg bæði hvað varðar þróun sjúkdómsins og í bataferlinu.
Þá verður fjallað um það að vímuefnasýki sé meðhöndlanlegur sjúkdómur og beri að gera ráð fyrir bakföllum. Batahorfur grundvallist á mörgum samhæfðum þáttum, eins og líkamlegri heilsu, persónuleika, geðheilsu og félagslegri færni hins vímuefnasjúka. Félagslegt stuðningsnet sé mikilvægt varðandi langtíma batahorfur og sé fjölskyldan mikilvæg í þessu sambandi.
Fyrirlesari er Erla Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi MA og forstöðumaður heimila fyrir karla sem eiga við vímuefnavanda að stríða.
Málstofan er klukkan 12-13 í Odda stofu 201. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
15.1.2009
Málstofur RBF og félagsráðgjafardeildar HÍ
Þema vorsins:
Erfiðleikar foreldra - Aðstæður barna
Þriðjudaginn 20. janúar kl. 12-13 í Odda stofu 201
Bataferli fjölskyldu alkóhólista
Erla Björg Sigurðardóttir félagsráðgjafi MA og forstöðumaður heimila fyrir karla sem eiga við vímuefnavanda að stríða.
Fjallað verður um vanda í fjölskyldum vegna alkóhólisma/vímuefnasýki og mikilvægi þess að batinn berist til allra fjölskyldumeðlima.
Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 12-13 í Odda stofu 201Velferð barna í FinnlandiDr. Katja Forssén prófessor í félagsráðgjöf við háskólann í Turku, Finnlandi.
Fjallað verður um velferð barna og hvaða áhrif kreppa og fátækt getur haft á líf þeirra.
Þriðjudaginn 17. mars kl. 12-13 í Odda stofu 201
Frá ,,barninu í mér" að ,,mínu barni"Hrefna Ólafsdóttir yfirfélagsráðgjafi á BUGL.
Fjallað verður um möguleika foreldra sem eiga við sálfélagslega erfiðleika að etja að vera góðir foreldrar þrátt fyrir það.
Fimmtudaginn 26. mars kl. 12.30-13.30 í Öskju N-132Endurhæfing eftir krabbamein. Aðstæður foreldra og barnaDr. Sævar Berg Guðbergsson félagsráðgjafi á háskólasjúkrahúsinu í Osló.
Fjallað verður um endurhæfingu og hæfingu eftir krabbamein, afleiðingar á lífskjör sjúklinga og aðstandenda og möguleika barna.
Þriðjudaginn 21. apríl kl. 12-13 í Odda stofu 201Atvinnuleysi og fjárhagserfiðleikarHugrún Jóhannesdóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar höfuðborgarsvæðisins.
Fjallað verður um áhrif aukins atvinnuleysis á aðstæður barnafjölskyldna og hvaða úrræði Vinnumálastofnun býður þeim.
Þriðjudaginn 19. maí kl. 12-13 í Odda stofu 201Velferð barna í EistlandiDr. Riina Kiik dósent í félagsráðgjöf við háskólann í Þrándheimi.
lRannsóknaset yur í barna-
og fjölskylduvernd » Fréttir og tilk
ningar Documentation Faslanen n Queen Sex
nRannsóknaset yur í barna-
og fjölskylduvernd » Fréttir og tilk
ningar Documentation Faslaneh w Queen